Skóflur mokast út

Það er úr vöndu að velja þegar kaupa skal góða skóflu. Mynd/Þröstur Ernir.
Það er úr vöndu að velja þegar kaupa skal góða skóflu. Mynd/Þröstur Ernir.

„Það er engu líkara en að fólk hendi skóflunum eftir veturinn því þær seljast alltaf grimmt á þessum árstíma. Við mokuðum þeim út í fyrra og héldum að það yrði minni sala í ár en svo er ekki. Það virðist vera endalaus markaður fyrir þetta,“ segir Friðrik Þórsson verslunarstjóri í Múrbúðinni á Akureyri.

Í snjóþunga er nauðsynlegt að eiga góða skóflu og Múrbúðin bíður upp á margar tegundir.

„Það fer eftir því hvernig snjórinn er hverju sinni hvort það eru stálskóflur eða aðrar tegundir sem seljast best,“ segir Friðrik. Í hálkunni undanfarna daga hefur fólk einnig verið duglegt við að salta.

„Það kláraðist hjá okkur saltið undir eins og við erum búnir að fá aðra sendingu. Við getum ekki haft það á samviskunni að fólk brjóti sig í hálkunni,“ segir Friðrik kíminn.

throstur@vikudagur.is

Nýjast