Skíðafólk kveður veturinn í Hlíðarfjalli í dag

Eftir langan og snjóríkan skíðavetur í Hlíðarfjalli ætlar Skíðafélag Akureyrar að halda "skíðagöngumót" í dag, þjóðhátíðardaginn. Ekki er um að ræða keppni, heldur ætlar fólk að hittast og kveðja veturinn. Lögð verður 7-8 km göngubraut frá skíðagönguhúsinu, upp á Stórhæð og upp í Hrafnsstaðaskál. Lagt verður af stað kl. 11.00 frá skíðagönguhúsinu í Hlíðarfjalli.

Heitt verður á könnunni í skíðagönguhúsinu

Nýjast