Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var tekið fyrir erindi frá Vinum Akureyrar þar sem óskað er eftir að skemmtistaðir megi vera opnir um Verslunarmannahelgina, til kl. 02:00 aðfararnótt föstudags og til kl. 05:00 aðfararnótt laugardags, sunnudags og mánudags. Með vísan 25. gr. í lögreglusamþykkt fyrir Akureyrarkaupstað samþykkir bæjarráð að heimila veitingastöðum að hafa opið um verslunarmannahelgina sem hér segir: Aðfararnótt laugardags og sunnudags til kl. 05:00 og aðfararnótt mánudags til kl. 04:00. Bæjarráð telur ekki rök fyrir að auka opnunartíma aðfararnótt mánudags frekar en heimilt er í lögreglusamþykktinni á almennum frídögum. Bæjarráð samþykkir einnig beiðni Vina Akureyrar um að aðfararnótt föstudags verði opið til kl. 02:00.