Skapandi fyrirtæki fær viðurkenningu

Ingólfur Sverrisson
Ingólfur Sverrisson

Kælismiðjan Frost fékk í síðustu viku viðurkenningu fyrir að hafa hækkað mest á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki á síðasta ári.  Um leið og stjórn og starfsfólki þessa ágæta fyrirtækis er óskað til hamingju með þennan frábæra árangur er ástæða til að vekja athygli á þeirri fyrirmynd sem slík fyrirtæki eru öðrum og einnig hvaða möguleikar eru fyrir hendi hvað varðar eflingu málm- og véltækniðnaðarins á Akureyri ef rétt er staðið að málum. Þeir eru meiri en margan grunar.

Það var því ekki að ófyrirsynju, þegar framtíðarsýn í atvinnumálum Akureyrar var mótuð árið 1999, að áhersla var lögð á að efla skyldi tæknigreinar og þannig gæti bærinn náð því takmarki að „taka forystu í nýtingu þekkingar til að skapa forskot og vöxt í atvinnumálum.“  Þá var markið sett svo hátt að fyrirtæki á Akureyri geti greitt hærri laun en sambærilegar starfsgreinar annars staðar; bærinn og Eyjafjarðarsvæðið verði með öðrum orðum þekkt fyrir góð lífskjör á grundvelli vel rekinna tæknifyrirtækja þar sem virðisauki er meiri en í mörgum öðrum atvinnugreinum.  Kælismiðjan Frost er einmitt eitt slíkt skapandi fyrirtæki  og fleiri mætti nefna á Eyjafjarðarsvæðinu þar sem hönnun, tækni og fagmennska er lögð til grundvallar.  Nægir að benda á Vélfag í Ólafsfirði, Rafeyri og DNG/Slippinn á Akureyri sem öll hanna og framleiða vélar,  tæki og ýmis konar lausnir sem eru eftirsóttar hér á landi og á alþjóða markaði. 

Forskot og vöxtur

Forsenda þess að slíkum fyrirtækum fjölgi og þau dafni enn frekar á Akureyri og í nágranngrabyggðum eru öflugar menntastofnanir og góð þjálfun starfsmanna í fyrirtækjunum sjálfum.  Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur unnið mjög gott starf á málm- og véltæknisviðinu undanfarin ár og þaðan hafa komið margir góðir fagmenn.  Skólinn hyggur á enn frekari sókn í góðri samvinnu við fyrirtæki á svæðinu enda mála sannast að fjölga þarf þeim sem læra málmiðnaðarfögin mjög mikið til að anna væntanlegri eftirspurn í sívaxandi iðngrein. Það hlýtur því að vera eitt af höfuðmálefnum mennta- og fræðslumála á Akureyri að efla enn frekar málmiðnaðardeild VMA.   Auk þeirra viðfangsefna málmiðnaðarfyrirtækja sem þegar blómstra á Akureyri, og eiga enn eftir að vaxa, bendir margt til að þjónusta við norðurskautssvæðin, Grænland og olíuvinnslu, aukist gríðarlega næstu tíu til tuttugu árin. Í þeim efnum mun málm-, véltækni- og rafiðnaðargreinar gegna lykilhlutverki en þær nýta sannarlega þekkingu og tæknilega færni „til að skapa forskot og vöxt í atvinnumálum,“ eins og stefnt var að um árið.

Ingólfur Sverrisson

Forstöðumaður Málm- og véltæknisviðs Samtaka iðnaðarins

 

Nýjast