Skagfirskar skemmtisögur fóru á metsölulista bókaverslana fyrir síðustu jól og fengu ekki aðeins frábærar viðtökur í Skagafirði heldur um land allt og ekki síst hjá nágrönnunum í Eyjafirði. Skemmtisögur er víða að finna í Skagafirði og nú koma hátt í 240 til viðbótar sem Björn Jóhann Björnsson, Skagfirðingur og blaðamaður á Morgunblaðinu, tók saman öðru sinni. Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út.
Í bókinni, sem heitir Skagfirskar skemmtisögur 2 Meira fjör! er húmoristum frá Hofsósi og nærsveitum gerð mjög góð skil, sem og Króksurum, Lýtingum og Blöndhlíðingum, auk fleiri sagna af klerkum í Skagafirði. Nýjum og stórskemmtilegum persónum bregður fyrir, lifandi sem gengnum, eins og Jóni Ormari Ormssyni, Rögnvaldi gáfaða og Jóhönnu Sigríði Sigurðardóttur, fv. prestsfrú á Miklabæ og móður Péturs Jóhanns Sigfússonar grínista. Einnig koma aftur við sögu kunnir kappar á borð við Álftagerðisbræður, séra Hjálmar Jónsson, Gísla Einarsson sjónvarpsmann, Guttorm Óskarsson framsóknarmann, Friðrik bónda á Svaðastöðum og Hvata á Stöðinni.