Skaftfell hlýtur Eyrarrósina 2013

Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi er handhafi Eyrarrósarinnar 2013 og veittu aðstandendur þess verðlaununum móttöku við athöfn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri nú síðdegis.

Dorrit Moussaieff forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar, afhenti verðlaunin. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingarinnar ávörpuðu samkomuna Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Hanna Styrmisdóttir listrænn stjórnandi Listahátíðar og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri. Kórinn Hymdodia söng spunasöng undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar, við góðar undirtektir gesta.

Verðlaunin sem Skaftfell hlýtur ásamt Eyrarrós í hnappagatið er fjárstyrkur að upphæð 1.650.000 krónur, auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Önnur tilnefnd verkefni í ár voru þungarokkshátíðin Eistnaflug á Neskaupsstað og leiklistarhátíðin Act Alone á Vestfjörðum og hljóta þau 300 þúsund króna verðlaun auk flugmiða. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunaafhendingin fer fram utan Reykjavíkur, en á næstu árum mun afhending Eyrarrósarinnar fara fram í öllum landshlutum.

 

 

Nýjast