Stjórn hjúkrunarráðs og stjórn læknaráðs Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir áhyggjum af uppsögnum hjúkrunarfræðinga á Landspítala. Hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við sjúklinga og aðstandendur. Augljóst er að þjónusta spítalans verður í uppnámi ef uppsagnirnar verða að veruleika.
Stjórn hjúkrunarráðs og stjórn læknaráðs beina því til stjórnvalda, stjórnenda á Landspítala og hjúkrunarfræðinga að leita allra leiða til að leysa vandann.