Haraldur Valdimarsson húsasmiður á Akureyri fagnar 70 ára afmæli á morgun, föstudag. Eftir að Haraldur lét af störfum, hefur ljósmyndum átt hug hans allan. Í tilefni tímamótanna laumuðust börnin hans í stórt ljósmyndasafn afmælisbarnsins og völdu nokkrar myndir til að sýna í prentútgáfu Vikudags í dag. Við tökum smá forskot á sæluna og birtum hérna á vikudagur.is þrjár myndir.