Slökkvilið og lögreglan á Akureyri vinna við að losa niðurföll á Eyrinni Akureyri, en sjór flæðir yfir við Kaldbaksgötu og nágrenni á Eyrinni. Meðfylgjandi myndir voru teknar skömmu fyrir klukkan 14:00
Ný gönguleið hefur verið tekin í notkun meðfram vesturströnd Hríseyjar. Á þeirri leið er gömul aflögð steypustöð sem nú hefur verið breytt í áningarstað. Áningarstaðurinn líkist einhvers konar ramma af húsi – þó það sé ekki hús í eiginlegri merkingu.
Sniglarækt hefur víða í Evrópu sannað sig sem vistvæn og arðbær búgrein með fjölbreyttum afurðum – allt frá lúxusmatvöru til hráefna í snyrtivöruiðnað. Nýnæmi verkefnisins felst í að aðlaga slíka ræktun að íslenskum aðstæðum með áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu og kolefnislágan rekstur.
Laugardaginn 28. júní verður mikið um að vera á Listasafninu á Akureyri þar sem boðið verður upp á listamannaspjall við Þóru Sigurðardóttur kl. 15 undir stjórn Ann-Sofie N. Gremaud, en klukkan 14 sýnir Katrin Hahner gjörning í tengslum við þátttöku hennar í samsýningu norðlenskra listamanna, Mitt rými.
Rauði krossinn á Íslandi hefur hleypt af stokkunum fræðslu- og forvarnarátaki um öryggi barna í sundi. Átakið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samtök forstöðumanna sundstaða á Íslandi (SFSÍ) og er því beint að öllu landinu.
Árlega drukkna yfir 300 þúsund manns í heiminum eða um 30 manneskjur á hverjum einasta klukkutíma. Á Íslandi drukknuðu 68 manns á tíu ára tímabili frá 2013-2023. „Drukknun er algengari en flestir halda og stundum er því talað um hinn þögla faraldur,“ segir Hildur Vattnes Kristjánsdóttir, teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum.
Í kjölfar ítarlegrar úttektar Embættis landlæknis á geðþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) hefur verið ráðist í umfangsmiklar umbætur til að efla þjónustuna og bæta aðstæður fyrir bæði sjúklinga og starfsfólk. Markvisst hefur verið unnið að úrbótaáætlun með það að leiðarljósi að styrkja geðheilbrigðisþjónustu SAk.
Akureyrarbær og Skátafélagið Klakkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um eflingu samstarfs, framtíðaruppbyggingu og gerð heildstæðs rekstrarsamnings um starfsemi félagsins.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur tekið tillit til skoðana sem fram komu í athugasemdum sem sendar voru í kjölfar þess að til skoðunar var að loka leikskóladeildinni Krílabæ.
Eitt af því sem hefur reynst okkur Íslendingum vel í gegnum aldirnar, og í raun haldið lífi í landanum þegar verst áraði, er seiglan. Seigla í daglegu lífi er því eitt af því mikilvægasta sem við getum kennt börnum okkar.