Sjómenn styrkja barnadeild

Áhöfnin á Árbaki EA afhenti barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri styrk upp á 100.000 krónur í vikunni. Aðalheiður Guðmundsdóttir hjúkrunardeildarstjóri veitti honum viðtöku og sagði hann hafa mikla þýðingu. „Til þess að við getum keypt eða endurnýjað tæki þurfum við á styrkjum að halda. Allt sem er endurnýjað í dag er í gegnum gjafabréf,“ segir Aðalheiður. Einnig á að endurnýja afþreyingarefni fyrir börnin á deildinni. Árbakur hefur verið seldur til Frakklands og ákvað áhöfnin því að gefa barnadeildinni þá fjármuni sem til voru í sjóði.

Nýjast