Sjómenn eru flestir mjúkir inn við beinið

Konráð Alfreðsson/mynd Karl Eskil
Konráð Alfreðsson/mynd Karl Eskil

„Já, já, það er stundum sagt að sjómenn séu jaxlar og hörkutól. Þeir eru hins vegar flestir mjúkir inn við beinið, það er ábyggilegt,“ segir Konráð Alfreðsson formaður Sjónammafélags Eyjafjarðar.

 Konráð hefur stýrt Sjómannafélagi Eyjafjarðar í nærri aldarfjórðung, þannig að hann þekkir málefni sjómanna til hlítar. Hann er jafnframt varaformaður Sjómannasambands Íslands og hefur tekið að sér margvísleg trúnaðarstörf fyrir sjómenn á starfstímanum. Hann segir að starfsemi félagsins hafi tekið miklum breytingum í áranna rás.

 „Hingað á skrifstofuna leita menn með hin margvíslegustu persónulegu mál, sem eru viðkvæm. Stundum er skrifstofan eins og félagsmálastofnun og ég er þakklátur fyrir þann trúnað sem margir hafa sýnt mér. Það getur verið erfitt að vera á sjónum, fjarri fjölskyldum og vinum.

Að vísu hefur orðið bylting á sviði fjarskipta, en engu að síður getur fjarveran verið íþyngjandi ýmissa hluta vegna. Í dægurlagatextum er gjarnan sungið um sjómannslífið ljúfa, en líf sjómannsins er auðvitað ekki alltaf dans á rósum. Það er bara þannig, þrátt fyrir að aðbúnaðurinn hafi batnað umtalsvert á síðari árum.  Hitt er svo annað mál að flotinn er orðinn allt of gamall og endurnýjunar er þörf.“ Segir Konráð Alfreðsson.

karleskil@vikudagur.is

 

 

Ítarlega er rætt við hann í prentútgáfu Vikudags

Nýjast