Sjómannahelginni fagnað á Akureyri

Pollurinn/ljósm Ragnar Hólm
Pollurinn/ljósm Ragnar Hólm

Það verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá á Akureyri um næstu helgi þegar sjómannadeginum verðurfagnað en það er gert með dagskrá sem nær frá föstudegi til sunnudags.  Dagskráin hefst á föstudagskvöldinu með Haftónum á Pollinum þar sem Húni II siglir með gesti og tónlistarfólk. Á laugardaginn eru bæjarbúar og gestir hvattir til að gera sér ferð í Sandgerðisbót og skoða þar Bátavélasafn Þórhalls Matthíassonar, smakka á afurðum hafsins, rölta um bryggjurnar og skoða verbúðirnar.  Sama dag verður glæsileg fjölskylduskemmtun að Hömrum þar sem unga kynslóðin finnur eitthvað við sitt hæfi. Þarna verða Solla stirða og Íþróttaálfurinn, Skoppa og Skrítla, karamelluflug, andlitsmálning og fleira skemmtilegt. Á sunnudaginn, sjálfan sjómannadaginn verður dagskrá í Hofi og líf og fjör verður á Pollinum. Boðið verður upp á tónlist, fræðslu um síldveiðar á Íslandi og sjóstangveiði svo dæmi sé tekið, sýnd verða bátalíkön úr smiðju Gríms Karlssonar, trúðurinn Wally, heiðranir tengdar sjómennsku og strandmenningu og auðvitað verður tekist á í róðrakeppni og koddaslag. Félagar úr Siglingaklúbbnum Nökkva kynna siglingaíþróttina, sýna félagssvæði sitt og bjóða upp á bakkelsi. 

 

Þetta er aðeins brot af því sem verður í boði á sjómannahelginni á Akureyri.  Nánari upplýsingar um dagskrána og tímasetningar er að finna á www.visitakureyri.is 

 

Nýjast