Götur Akureyrar verða þvegnar í sumar og mun aukakostnaður við hreinsun á sandi nema um sjö milljónum króna samkvæmt upplýsingum Vikudags. Eins og greint hefur verið frá í blaðinu var 400 tonnum af sandi dreift á götur og gangstíga bæjarins í vetur. Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-listans, segist ekki hrifinn af þeirri hugmynd að nota salt í stað sands. Við höfum notað salt á göturnar við misjafna hrifningu bæjarbúa. En þegar ástandið er eins það var í vetur að þá dugar ekkert annað en sandurinn, segir Oddur.