Hallgrímur Sigurðsson, fimm ára drengur á Hrafnagili, er ekki eins og flestir jafnaldrar hans. Hallgrímur greindist ungur með Angelman-heilkenni, sem lýsir sér þannig að hann þroskast ekki á sama hátt og önnur börn. Um afar sjaldgæft heilkenni er að ræða hér á landi og talið að einungis eitt barn fæðist með Angelman-heilkennið á nokkurra ára fresti. Síkæti og hláturmildi er eitt af því sem einkennir börn með heilkennið og er Hallgrímur nánast alltaf brosandi.
Ítarlegt viðtal er við móður Hallgríms í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag