Sjaldgæf baktería greinist í barni á Akureyri

Stúlkan dvelur nú á Landspítalanum. Mynd/Morgunblaðið
Stúlkan dvelur nú á Landspítalanum. Mynd/Morgunblaðið

Rúmlega tveggja ára stúlka á Akureyri hefur greinst með E.Coli-bakteríu sem er mjög sjaldgæf hér á landi. Talið er að barnið hafi smitast af bakteríunni í gegnum matvæli, en hún getur m.a. fundist í nautgripum og afurðum þeirra. Stúlkan var flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur fyrir um tveimur vikum þar sem hún var í öndurvél í tvær vikur á Landspítalanum.

Hún hefur verið útskrifuð af gjörgæsludeild og er á batavegi en undir ströngu eftirliti á spítalanum. Amma stúlkunnar gagnrýnir greiningu læknis á Akureyri harðlega.

throstur@vikudagur.is

Nánar verður fjallað um þetta mál í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag.

Nýjast