Síkið engin forsenda fyrir tillögunni

Síkið umdeilda.
Síkið umdeilda.

„Það var margt mjög gott í þessari tillögu en ég held að það sé ágætt að sé búið að hætta við síkið,” segir Logi Már Einarsson arkitekt og bæjarfulltrúi á Akureyri. Eins og fram hefur komið í Vikudegi verður umdeilt síki í tillögu að nýjum miðbæ væntanlega slegið útaf borðinu. Vinna við gerð nýs skipulags fyrir miðabæjarsvæðið á Akureyri er hafin og verður tillaga að nýjum miðbæ væntanlega kynnt næsta sumar. Logi segir hins vegar óþarfi að hætta alfarið við fyrra skipulag.

„Síkið er engin forsenda fyrir tillögunni og er í raun hennar akkilesarhæll. Það er hægt að útfæra hana miklu betur án þess að síkið sé til staðar. Það væri t.d. hægt að vera með garð eða jafnvel götu í staðinn. Ég vona að menn haldi í bæjarrýmið og þann hluta hugmyndarinnar. Tillagan bíður upp á ansi margt og það væri hrein afglöp að nýta sér ekki þá vinnu í framhaldinu,” segir Logi.

throstur@vikudagur.is

Nýjast