Sigurrós flutti fisk fyrir Samherja

Kristján Vilhelmsson og Þorstein Már Baldvinsson/mynd Karl Eskil
Kristján Vilhelmsson og Þorstein Már Baldvinsson/mynd Karl Eskil

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir tenginguna á milli veiða, vinnslu og markaðsstarfs mikilvæga. Hann segir allra leiða leitað til að koma afurðum á tilsettum tíma til kaupenda. Söludeildin vaki yfir öllu lausu rými í flugvélum sem héðan fara, hvort sem um er að ræða fragtflugvélar eða farþegavélar.

„Til marks um umsvifin get ég nefnt að Samherji hefur átt fisk í 17 flugvélum frá Íslandi einu og sömu helgina á hinum ýmsu Evrópuleiðum: Magnið er allt frá 100 kílóum í hverri vél upp í 10-12 tonn.

Haustið 2012 hélt hljómsveitin Sigurrós tónleika á Iceland Airwaves hátíðinni en hélt að þeim loknum í tónleikaferð til meginlands Evrópu. Vegna þess hve hljómsveitin var með mikið af búnaði hafði hún sína eigin vél til afnota. Auðvitað frétti söludeild Samherja af þessum flutningsmöguleika. Til að gera langa sögu stutta tókst henni að koma fjögur þúsund kílóum af ferskum fiski í vélina, innan um öll hljóðfærin og tækjabúnaðinn – með ljúfu samþykki Sigurrósar.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast