Sigmundur Davíð vinsælli en Höskuldur Þór meðal 18-24 ára Akureyringa

Sigmundur vinsæll meðal yngstu kjósendanna
Sigmundur vinsæll meðal yngstu kjósendanna

Áhugahópur um oddvita Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi lét Gallup skoða meðal íbúa Akureyrar og nágrennis  hvern þeir vilja sem oddvita Framsóknarflokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Úrtakið var 1080 manns og reyndist svarhlutfallið vera 65%

68 % karla velja Höskuld og 67 % kvenna. Sigmund Davíð velja 14 % karla og 9 % kvenna. Hvorugan segjast 18 % karla velja, en hlutfallið er 23 % meðal kvenna.

Athyglisvert er að skoða aldur svarenda.

26 % á aldrinum 18-24 ára segjast velja Höskuld Þór, en hins vegar segjast 32 % velja Sigmund Davíð.

42 % í þessum aldurshópi vegjast velja hvorugan.

Í aldurshópunum yfir ofan er hlutfallið hins vegar svipað, 64 – 70 % velja Höskuld, en 8-12% Sigmund Davíð.

Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldið í Mývatnssveit um helgina.

karleskil@vikudagur.is

 

Nýjast