Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, mun á föstudaginn setja með formlegum hætti í gang framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng, þegar hann ýtir á hnappinn og sprengir svokallaða viðhafnarsprengju við jarðgangagerðina. Sprengingin er áætluð milli kl. 14 og 15.
Af öryggisástæðum þarf að takmarka fjölda þeirra sem verða viðstaddir þessa fyrstu sprengingu við gangamunnann á Svalbarðsströnd og því er fólk beðið um að gera sér ekki ferð á svæðið af þessu tilefni. Víst má telja að sprengingin heyrist vel frá Akureyri.