Sigmundur Davíð skiptir um lögheimili

Sigmundur Davíð meðal flokksfólks / mynd karl eskil
Sigmundur Davíð meðal flokksfólks / mynd karl eskil

Eftir að ákveðið var að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  leiddi framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, sagðist hann ætla að flytja lögheimili sitt í kjördæmið. Í desember sagði Sigmundur Davíð að  ýmsir staðir kæmu til greina, enda margir góðir og fallegir staðir í kjördæminu.

Þjóðskrá Íslands segir að lögheimili Sigmundar Davíðs sé að Hrafnabjörgum III, í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði.

„Þetta er hið besta mál,“ sagði Eyþór Elíasson kosningarstjóri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi þegar hann var spurður um nýtt lögheimili formanns flokksins.

Ekki hefur náðst í Sigmund Davíð í dag.

Jónas Guðmundsson, sem býr á Hrafnabjörgum, er einn helsti stuðningsmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast