Eftir að ákveðið var að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiddi framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, sagðist hann ætla að flytja lögheimili sitt í kjördæmið. Í desember sagði Sigmundur Davíð að ýmsir staðir kæmu til greina, enda margir góðir og fallegir staðir í kjördæminu.
Þjóðskrá Íslands segir að lögheimili Sigmundar Davíðs sé að Hrafnabjörgum III, í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði.
Þetta er hið besta mál, sagði Eyþór Elíasson kosningarstjóri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi þegar hann var spurður um nýtt lögheimili formanns flokksins.
Ekki hefur náðst í Sigmund Davíð í dag.
Jónas Guðmundsson, sem býr á Hrafnabjörgum, er einn helsti stuðningsmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
karleskil@vikudagur.is