Ég var 18 atkvæðum frá því að ná baráttusætinu í NA um helgina. En ég berst áfram. Annað kemur ekki til greina. Stöku maður skiptir ekki öllu, heldur sú stefna sem skilar mesta og réttlátasta samfélaginu. Málefnastaðan er góð og listinn sterkur og fyrir vikið stefnum við ótrauð á að ná þremur mönnum á þing. Þar mun ég leggja mig allan fram, skrifar þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson á Facebooksíðu sína.
Sigmundur hafnaði í fjórða sæti í prófkjöri flokksins um síðustu helgi. Í þriðja sæti hafnaði Jónína Rós Guðmundsdóttir. Líklegt verður að teljast að Sigmundur Ernir eigi við að þriðja sætið sé baráttusæti flokksins í komandi kosningum.