Sigfús sækist eftir 2.-4. sæti hjá Framsókn í Norðausturkjördæmi

Sigfús Karlsson
Sigfús Karlsson

Sigfús Karlsson hefur ákveðið að sækjast eftir 2.-4. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Sigfús er 47 ára að aldri, fæddur og uppalinn Akureyringur með víðtæka reynslu úr atvinnulífi í bænum, félagsstörfum og starfi innan Framsóknarflokksins, bæði á vettvangi bæjarmála og kjördæmisins. Sigfús er framkvæmdastjóri bókhaldsskrifstofunnar Framtals sf. á Akureyri sem hann hefur starfrækt í 20 ár með fjölskyldu sinni.

Sigfús hóf afskipti af stjórnmálastarfi á níunda áratugnum. Hann starfaði m.a. innan Sambands ungra framsóknarmanna og sat sem fulltrúi þess þing ungliðahreyfinga miðjuflokka í Noregi árið 1988. Sigfús átti sæti á lista flokksins til bæjarstjórnar Akureyrar árið 1986 og sat í stjórn Verkmenntaskólans á Akureyri í upphafi tíunda áratugarins. Sigfús hefur gegnt fjöldamörgum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn á undanförnum árum, til að mynda sem formaður Framsóknarfélags Akureyrar.

Sigfús var í 3. sæti á lista flokksins til bæjarstjórnar árið 2010 og hefur setið sem varamaður í bæjarstjórn á yfirstandandi kjörtímabili. Hann er aðalmaður í Framkvæmdaráði Akureyrarkaupstaðar, situr í stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar og er áheyrnarfulltrúi flokksins í stjórn Akureyrarstofu. Sigfús var í 9. sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi árið 2003, skipaði 6. sæti í kosningunum 2007 og 4. sæti í kosningunum árið 2009. Hann sat um tíma sem varamaður á Alþingi síðveturs 2008.

„Ég hef á löngum tíma aflað mér víðtækrar reynslu sem nýtist í pólitísku starfi á landsvísu og það er sannarlega verk að vinna. Heimilin í landinu hafa á þessu kjörtímabili setið eftir og sem bókari og ráðgjafi fyrir fjölda fólks hef ég séð mjög mörg skýr dæmi þess hvernig þyngri byrði skatta og stórfelld lækkun vaxtabóta hefur leikið heimilin og fjölskyldurnar. Fyrir hönd þessa fólks verður að tala skýrt og snúa blaðinu við inni á Alþingi. Við verðum líka að snúa vörn í sókn í atvinnumálum hér í kjördæminu, tryggja bætur í samgöngumálum, heilbrigðismálum, löggæslu og ekki síður hvað varðar fjarskiptin. Þau eru snar þáttur í lífsgæðum nútímans og væri nær að stjórnvöld beittu sér fyrir því að tryggja þegnunum jöfn lífsgæði áður en þau snúa sér að því að breyta vægi atkvæða. Kosningarnar í vor snúast um fólkið í landinu og ég hef fullan hug á að leggja hönd á plóg. Þess vegna býð ég fram krafta mína,“ segir Sigfús, í tilkynningu til fjölmiðla.

Eiginkona Sigfúsar er Guðrún Rúnarsdóttir. Börn þeirra eru fjögur á aldrinum 14-21 árs.

 

Nýjast