Sígandi lukka er best

Stjórnarandstæðingar hafa gert lítið úr árangri ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur í efnahagsmálum.   En fyrir fjórum árum stóðum við uppi, nánast gjaldþrota þjóð. Tekjur ríkisins minnkuðu gríðarlega, fjárlagahallinn var yfirgengilegur, atvinnuleysi jókst mikið, skuldir stökkbreyttust og fyrirtæki urðu gjaldþrota.  Flest vorum við kvíðin og ráðvillt.  Það leit út fyrir vöruskort, það leit út fyrir að við gætum hvorki borgað í gjaldeyri fyrir olíu né lyf.  Þetta voru óvissutímar.  Nú fjórum árum síðar erum við komin á góðan rekspöl út úr kreppunni.

Tölurnar tala sínu máli

Fjálagahallinn sem var 216 milljarðar króna þegar ríkisstjórnin tók við völdum árið 2009, er áætlaður  3.6 milljarðar króna á þessu ári.

Atvinnuleysi sem fór upp í  9% nokkrum mánuðum eftir hrun, var komið niður í 5,7% í desember síðast liðnum. 

Stýrivextir sem voru 18% í janúar árið 2009, voru komnir niður í 6% í loks síðasta árs og verðbólgan sem var einnig um 18% í janúar árið 2009, var komin niður í  rúm 4,2%.

Tölur Hagstofunnar fyrir síðasta ár, benda til þess að gjaldþrotum fyrirtækja hafi fækkað um þriðjung  milli áranna 2011 og 2012. 

Þessar tölur tala sínu máli og margir telja þetta góðan árangur.   Þeirra á meðal eru Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og  Lars Christiansen frá Danske bank, sá sem spáði fyrir um hrun bankanna. 

Skjótvirkar lausnir ekki til

Þótt vel hafi miðað eru ærin verkefni framundan. Hafi menn látið sig dreyma um að unnt væri að hverfa aftur til lífshátta ársins 2007, á fjórum árum, gátu þeir ekki annað en orðið fyrir miklum vonbrigðum. Við erum enn í djúpri alþjóðlegri efnahagskreppu og engar skjótvirkar lausnir sjáanlegar.  Það þarf áfram að gæta aðhalds og sparnaðar í ríkisfjármálum.  Vissulega þarf einnig að ýta úr vör nýjum fjárfestingum og skapa stöf.  Þar leggur ríkisstjórnin sitt af mörkum, með því að leggja gríðarlegt fé í fjárfestingar  í þágu almennings á næstu þremur árum. Á þessu ári munu fara í það verkefni um 10 milljarðar króna.  Þeim fjármunum verður meðal annars varið í að byggja jarðgöng, byggja upp aðstöðu á ferðamannastöðum, efla græna hagkerfið og reisa nýtt fangelsi.  Þessar framkvæmdir munu skapa störf, til dæmis  í Norðausturkjördæmi, þar sem framkvæmdir við Norðfjarðagöng eiga að hefjast  á þessu ári og einnig vinna við Vaðlaheiðargöng. 

Kreppa í vestrænum ríkjum

Sá árangur sem náðst hefur á þessu kjörtímabili hefur tekið tíma, en sígandi lukka er best.  Það er alvarleg staða í efnahagsmálum flestra vestrænna ríkja.  Þess vegna halda  mörg fyrirtæki að sér höndum varðandi fjárfestingar. En öll él birtir upp um síðir.  Það er ástæða til að stíga varlega til jarðar í því efnahagsumhverfi sem við búum við í heiminum í dag og gæta þess að rasa ekki um ráð fram. Þá mun okkur farnast vel.

Erna Indriðadóttir skipar 2. Sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í NA kjördæmi.

 

 

 

 

Nýjast