Stúlkurnar í Skautafélagi Akureyrar unnu til sex verðlauna á Haustmóti ÍSS á listaskautum sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri sl. helgi. Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir sigraði í A-flokki stúlkna með 68 stig og Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir varð önnur í sama flokki með 64,14 stig. Í flokki 12 ára og yngri A hafnaði Emilía Rós Ómarsdóttir í öðru sæti með 26,52 stig. Marta María Jóhannsdóttir sigraði örugglega í flokki 8 ára og yngri A með 15,80 stig og Nadia Farajsdóttir Swaiki varð í þriðja sæti með 12,97 stig. Pálína Höskuldsdóttir fékk silfurverðlaun í flokki 12 ára og yngri B með 18,66 stig og Aldís Kara Bergsdóttir vann silfurverðlaun í flokki 10 ára og yngri B með 14.37 stig.