Sex keppendur Íslands í Eurovision úr Dalvíkurbyggð - heimsmet?

Þegar Eyþór Ingi keppir fyrir Íslands hönd með laginu Líf í Eurovision í vor í Malmö í Svíþjóð verður það 25. skiptið sem að Ísland tekur þátt. Eyþór Ingi verður þar með 43. flytjandinn frá Íslandi sem tekur þátt í Eurovision.

Eyþór Ingi kemur úr miklum Eurovision bæ, Dalvíkurbyggð, en af öllum Eurovisionförum Íslands eru þrír keppendur fæddir eða uppaldir í sveitarfélaginu og þrír aðrir með sterk tengsl eða hafa haft viðdvöl í sveitarfélaginu um lengri eða skemmri tíma. Þetta eru þau Matthías Matthíasson, Friðrik Ómar Hjörleifsson,  Eyþór Ingi Gunnlaugsson,  Hera Björk, Daníel Ágúst og Pálmi Gunnarsson.

Það má því leið að  því líkum að um heimsmet sé að ræða en það hlýtur að teljast einstakt að sex Eurovisionfarar tengist með þessum hætti sama 2.000 manna samfélaginu.

Nýjast