Hallgrímur Friðrik Sigurðarson lenti í alvarlegu snjósleðaslysi fyrir tæpu ári síðan. Hann brotnaði nánast á öllum vinstri helmingi líkamans. Báðir fæturnir brotnuðu, vinstri handleggurinn og níu rifbein brotnuðu yfir brjóstkassann og var hann hætt kominn vegna áverka á ósæð. Hallgrímur dvaldi mánuðum saman á sjúkrahúsi eftir slysið og hefur verið í stífri endurhæfingu frá sl. sumri. Hann var í hjólastól um tíma en fór að ganga á ný fyrir fjórum mánuðum.
Blaðamaður Vikudags heimsótti Hallgrím og fjölskyldu á heimili þeirra í Naustahverfi.
Maður verður svolítið pirraður yfir því að vera svona ósjálfbjarga. Fyrir mig er mjög erfitt að geta ekki gert þessa litlu hluti sem þykja sjálfsagðir. En sú staðreynd að litlu mátti muna að ég hefði ekki verið til staðar fyrir dóttur mína breytir minni sýn á lífið. Það er einfaldlega hroðalegt að hugsa til þess hvað maður hefði skilið eftir sig; konu og nýfætt barn. Að horfast í augu við þá millimetra eða mínútur sem stóðu á milli lífs dauða gerir það að verkum að maður metur lífið algjörlega upp á nýtt. Maður á að njóta hvers dags og læra að lifa í nútíðinni, segir Hallgrímur.
throstur@vikudagur.is
Þetta er aðeins brot úr ítarlegu viðtali við Hallgrím sem lesa má í heild í prentútgáfu Vikudags.