Sýning á teikningum Kristins G. Jóhannssonar verður opnuð í MJÓLKURBÚÐINNI Kaupvangsstræti, á laugardaginn kemur kl. 14.00. Sýningin verður opin tvær næstu helgar frá kl. 14-18 og lýkur sunnudaginn 25. janúar. Kristinn efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í Reykjavík 1962 í Bogasal Þjóðminjasafnsins og sama ár tók hann fyrsta sinni þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum. Kristinn hefur síðan sýnt oft og víða hér á landi og erlendis.
Kristinn hefur þetta að segja um sýninguna: "Löngu er tilgangslaust, finnst mér, að setja á langar ræður eða skýringar á verkum þeim, sem ég sýni hverju sinni, enda ég einatt við sama heygarðshornið og málverkið lýtur sínum lögmálum og fer sínu fram hvað sem hver segir.Ég gríp því til sama ráðs og ég sé algengt er hjá meiri og minni rithöfundum og snillingum að þeir birta utan á bókum sínum dóma og umsagnir, þ.e. hvað aðrir hafa sagt um fyrri verk þeirra, ef mætti verða til glöggvunar verðandi lesendum. Sjaldan eru þar verstu umsagnirnar. Mér verður þeirra dæmi. Svo vill til að ég á í fórum mínum umfjöllun um verk sem eru einmitt af sama toga og þau sem hér ber fyrir augu. Annars vegar um brekkurnar og speglun þeirra í Pollinum og hins vegar um krítarmyndir, svarthvítar, frá fjörrum dögum."
Kristinn G. Jóhannsson er fæddur árið 1936. Stúdent frá MA 1956 og lauk kennaraprófi 1962. Starfaði við kennslu og skólastjórn á Patreksfirði, Ólafsfirði og Akureyri í tæpa fjóra áratugi. Hann stundaði listnám hjá Jónasi Jakobssyni, myndhöggvara og Hauki Stefánssyni , málara, á Akureyri, en síðar í Reykjavík og í Edinburgh College of Art. Hann efndi til fyrstu sýningar sinnar á Akureyri 1954 en sýndi fyrst í Reykjavík 1962 í Bogasal Þjóðminjasafnsins og sama ár tók hann fyrsta sinni þátt í Haustsýningu FÍM í Listamannaskálanum . Hefur síðan sýnt oft og víða hér á landi og erlendis. En Senn er sólarlag.