Sendimaður forseta Frakklands heimsækir Akureyri

Michel Rocard, sérlegur sendimaður forseta Frakklands í málefnum heimsskautanna, kemur til Íslands 8.-11 október. Hann flytur fyrirlestur 10. október í Háskóla Íslands um alþjóðlega samvinnu á Norðurskautssvæðinu. Hann hittir íslenska embættismenn og fer einnig til Akureyrar. Með honum í för eru sérfræðingar úr vinnuhópum Norðurskautsráðsins.

Tilgangur heimsóknarinnar er að styrkja samvinnu landanna tveggja um Norðurskautssvæðið, en þeirri samvinnu var ýtt úr vör með opinberri heimsókn Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, til Parísar 7. mars síðastliðinn. Hún var síðan styrkt enn frekar með samstarfssamningi Háskólans á Akureyri og Université Pierre et Marie Curie í maí. Einnig hafa hafist verkefni í samvinnu við Stofnun Paul-Emile Victor og í gegnum evrópusamstarf.

Michel Rocard mun koma við í Reykjavík og á Akureyri í heimsókn sinni. Í Reykjavík mun hann ræða við forseta Íslands, utanríkisráðherra og aðra embættismenn, um þróun mála á Norðurskautssvæðinu, með nána samvinnu í huga, þar sem allir hlutaðeigandi fá að taka þátt. Þann 10. október kl. 12 mun hann flytja fyrirlestur í Hátíðarsal Háskóla Íslands, nefndan Why is international cooperation in the Arctic necessary?.

Á Akureyri mun Rocard opna fyrirlestur Marie-Noelle Houssais, en hann ber heitið French Research on Arctic Ocean and Climate Change. Rocard mun einnig eiga fundi með yfirmönnum Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Arctic Portal, sem og með bæjaryfirvöldum á Akureyri.

 

 

 

Nýjast