Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps skrifar pistil á heimasíðu hreppsins og fjallar meðal annars um fjölmiðlana í aðdraganda alþingiskosninganna. Hún er ekki sátt við stjórnendur umræðuþáttanna.
Það sem hefur einkennt þættina þegar spyrlarnir eru úr Reykjavík, sem oftast er nú, er fáfræði um landsbyggðina og jafnvel hroki. Ekki er von á góðu þegar fjölmiðill allra landsmanna fer fram með slíkum hætti og ýtir enn frekar undir skilningsleysi höfuðborgarbúa á landsbyggðinni, segir Guðný í pistlinum.
Eins og komið hefur fram er sveitarstjórn Grýtubakkahrepps afar ósátt við sérstaka veiðigjaldið sem sett var á fyrir skömmu. Þetta er landsbyggðskattur og kemur til með að rýra búsetuskilyrði á landsbyggðinni og setja margar minni og meðalstórar útgerðir í gjaldþrot. Hent hefur verið dúsum til þeirra sem mest veiðigjald greiða s.s ný Norðfjarðargöng og ný ferja til Vestmannaeyja. Aftur á móti hefur gleymst að henda dúsunni til okkar. T.d. færi ekki nema 3% af sérstaka veiðigjaldinu sem greitt er frá þessu sveitarfélagi í að setja vegrið milli Fagrabæjar og Ystu-Víkur en fram að þessu hefur verið talað fyrir daufum eyrum ráðamanna þjóðarinnar þegar vegamál í Grýtubakkahreppi eru nefnd. Ef til vill eykst skilningurinn svona rétt fyrir kosningar, segir Guðný Sverrisdóttir.