SEEDS kynnir spennandi ungmennaskipti fyrir ungt fólk á Ítalíu

Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS leita nú að áhugasömum einstaklingum á aldrinum 18 - 25 ára til að taka þátt í ungmennaskiptum sem fara munu fram í Lombardy héraði Ítalíu dagana 21. - 29. júní næstkomandi.

Þema þessara ungmennaskipta er ábyrgur landbúnaður og matvælaframleiðsla með áherslu á nýsköpun og vöruþróun. Þátttakendur munu m.a. heimsækja unga bændur á svæðinu og fá tækifæri til að ræða við forsvarsmenn hagsmunasamtaka bænda. Þátttakendur munu einnig kynna þjóðlega mat og hafa tækifæri á að kynna eigin framleiðslu eða framleiðslu frá sinni heimabyggð.

Ungmennaskiptin eru styrkt af Youth in Action áætlun Evrópusambandsins og því munu þátttakendur fá allt að 70% af ferðakostnaði endurgreiddan auk þess sem þeim verður séð fyrir fæði og húsnæði á meðan verkefninu stendur.

Vinsamlegast athugið að umsóknarfrestur hefur verið framlengdur. SEEDS mun senda 9 manna hóp í þetta verkefni og nú eru aðeins 3 sæti laus. Lokað verður fyrir umsóknir þegar öll sæti hafa verið fyllt af áhugasömum ungmennum og því er um að gera að senda inn umsókn sem allra fyrst, segir í tilkynningu frá SEEDS

Allar nánari upplýsingar er að finna á ungmennaskiptasíðu SEEDS: http://www.seeds.is/ungmennaskipti-youth-exchange

Nýjast