Seðlabanki Íslands hefur staðfest að Deutsche Fischfang Union GmbH & Co. KG (DFFU), tengist ekki á nokkurn hátt málum sem bankinn sé með til rannsóknar. Í ljósi yfirlýsingar bankans krefst DFFU þess að bankinn afhendi félaginu þegar í stað öll skjöl og tölvuskrár er hann hafi undir höndum og varða starfsemi DFFU.
Í lok september í fyrra sendi lögfræðingur DFFU fyrirspurn til Seðlabanka Íslands vegna þess að gögn er varða félagið höfðu verið tekin við húsleitir á Íslandi en félaginu hafði hvorki verið gert viðvart um að það sætti rannsókn af hálfu bankans né heldur hefði það verið upplýst um gang rannsóknarinnar. Í svarbréfi Seðlabanka Íslands í lok janúar segir: Til þessa dags hefur umbjóðandi þinn ekki tengst neinum málum sem Seðlabanki Íslands hefur til skoðunar og gæti lokið með íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun.
Ánægjuleg staðfesting
Þetta eru mjög ánægjuleg tíðindi. Með bréfi Seðlabanka Íslands er staðfest að DFFU er ekki til rannsóknar hjá bankanum. Við munum tilkynna viðskiptavinum okkar þessa niðurstöðu en jafnframt krefjumst við þess að Seðlabanki Íslands skili án tafar öllum þeim gögnum fyrirtækisins sem bankinn tók við húsleitir á Íslandi þann 27. mars 2012, segir Haraldur Grétarsson, framkvæmdastjóri DFFU.
Þetta kemur fram á heimasíðu Samherja.