Umdeild Dalsbraut á Akureyri var vígð á föstudaginn. Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi L-listans er sannfærður um að Dalsbraut verði almennt tekin í sátt meðal bæjarbúa þegar fram líða stundir.
Samkvæmt könnunum er mikill meirihluti Akureyringa á þeirri skoðun að Dalsbraut eigi rétt á sér. Vegalengdir styttast og umferðaröryggi eykst. Við hönnun og lagningu götunnar var horft til þess að auka öryggi gangandi vegfarenda í hverfinu. Það er eðlilegt að fólk hafi áhyggjur af breytingum og lagningu nýrra gatna í sínu hverfi, en ég er sannfærður um að í nánustu framtíð muni fólk uppgötva að umferðaröryggi hefur aukist og þeir sem voru á móti lagningu brautarinnar taki hana í sátt, segir Oddur Helgi