Einhvern veginn finnst manni að allt of margir vilji láta hugsa fyrir sig og fá flest allt tilbúið upp í hendurnar. Eitt atriði tengt þessu er að ekki má vera hált hér á noðurhjara öðru vísi en orgað sé á að moka sandi á stræti og torg og helst meira í dag en í gær.
Óhófið hefur aukist í þessu sambandi á síðustu 10-20 árum með takmörkuðum árangri.
Þegar hlánaði um daginn og mestan klakann tók upp komu afleiðingarnar í ljós, ryk í lofti og bærinn okkar afar skítugur.
Ljóst er að það er talsverður kostnaður við það að þrífa götur bæjarins á vorin og síðan að hreinsa sand úr holræsum. Svo ekki sé talað um ásýnd bæjarins.
Því langar mig að stinga upp á að þessum sandburði verði hætt, nema á gangstígum.
Það er nefnilega þannig að við þær aðstæður að hált verður á götunum gerir sandurinn minna gagn en margur heldur. Þó tel ég að við ættum að hálkuverja (með salti) tvo staði í bænum, Gilið og neðst í Þórunnarstræti.
Sá peningur sem sparast við sandburð og hreinsun mætti síðan brúka til að ryðja götur og gangstíga bæjarins betur en nú er gert.
Og vel að merkja, nota alvöru tæki til moksturs á gangstígum en ekki Barbie-tæki sem hoppa og skoppa ofan á snjónum.
Það er ljóst að margir eru ósammála minni skoðun á þessum sandburði en flestir sammála þegar kemur að svifrykinu.
Oft er þetta sama fólkið sem heimtar meiri sand og bölvar síðan svifrykinu og skítugum bæ.
Það er ekki bæði haldið og sleppt í þessu.
Anton Benjamínsson, íbúi á Akureyri.