Samstarfsyfirlýsing um kísilver á Bakka

Skrifað var undir samningana á Akureyri í dag
Skrifað var undir samningana á Akureyri í dag

Í dag skrifaðu Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra  og Berur Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings undir yfirlýsingu um samstarf ríkisins við Norðurþing, Hafnarsjóð Norðurþings og þýska iðnfyrirtækið PCC vegna áforma um uppbyggingu kísilvers á Bakka. Þá var jafnframt undirritað samkomulag milli Norðurþings, Hafnarsjóðs Norðurþings og íslenska ríkisins um ýmsar nauðsynlegar aðgerðir svo hægt verði að ráðast í atvinnuuppbyggingu á Bakka.

Á næstunni  mun atvinnuvegaráðherra leggja fram tvö frumvörp á Alþingi. Annað frumvarpið gerir ráð fyrir að ráðherra verði veitt heimild til að gera fjárfestingarsamning um byggingu kísilvers á Bakka. Hitt frumvarpið er lagt fram til að afla heimilda fyrir  ríkið til að kosta uppbyggingu tiltekinna innviða sem eru nauðsynleg forsenda verkefnisins, einkum vegtengingu milli hafnarinnar og iðnaðarsvæðisins á Bakka og stækkun Húsavíkurhafnar.  

Nýjast