Samningurinn um Vaðlaheiðargöng enn á borði fjármálaráðherra

Alþingi samþykkti í júní lög sem heimila að lána Greiðri leið ehf liðlega 8,7 milljarða króna til að standa straum af kostnaði við gerð Vaðlaheiðarganga. Fjármálaráðherra þarf að skrifa undir samninginn og bíða heimamenn undirskriftarinnar.  Pétur Þór Jónsson framkvæmdastjóri Eyþings vonar að ráðherra skrifi undir sem allra fyrst, þannig að hægt verði að hefjast handa.

„Já, okkur finnst þetta mál hafa dregist allt of lengi. Allir pappírar frá okkur liggja fyrir, þannig að það er ekki við heimamenn að sakast. Ríkið fór fram á hlutafjáraukningu hjá Greiðri leið, og það skilyrði hefur verið uppfyllt.“

ÍAV átti lægsta tilboð í gerð ganganna ásamt svissneska fyrirtækinu Matri, tilboðið hljóðaði upp á 8,8 milljarða króna. Líklega hækkar sú tala eitthvað, þar sem tilboðið er orðið eins árs gamalt. Á meðan ekki hefur verið gengið formlega frá fjármögnun getur verktakinn ekki gengið frá  kaupum á jarðgangaborum og öðrum nauðsynlegum tækjum.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast