Samningur bíður undirritunar

Hjúkrunarfræðingar við störf á Akureyri. Mynd/Þröstur Ernir.
Hjúkrunarfræðingar við störf á Akureyri. Mynd/Þröstur Ernir.

„Við bíðum ennþá eftir svörum frá ráðuneytinu um viðbótarfjármagn svo hægt sé að skrifa undir nýjan samning,“ segir Þóra Ester Bragadóttir fulltrúi í samninganefnd hjúkrunarfræðinga á Akureyri. Samningur á milli hjúkrunarfræðinga og framkvæmdastjórnar Sjúkrahússins á Akureyri liggur á borðinu en hjúkrunarfræðingar hafa krafist sömu launahækkunar og kollegar þeirra á Landspítalanum.

„Við vonum að málið leysist sem fyrst. Það á eftir að kynna samninginn fyrir starfsfólki sem verður gert eftir undirritun. Við í samninganefndinni erum ágætlega sátt við samninginn þótt við hefðum viljað aðeins meira. Þetta eru sambærileg kjör og kollegar okkar á Landspítalann fengu í gegn,“ segir Þóra.

Stofnanasamningur hjúkrunarfræðinga á Akureyri hefur ekki verið endurskoðaður síðan árið 2006 en vinna við nýjan samning hófst í nóvember 2011.

throstur@vikudagur.is

 

Nýjast