Samningur á milli hjúkrunarfræðinga og framkvæmdastjórnar Sjúkrahússins á Akureyri liggur á borðinu samkvæmt upplýsingum Vikudags. Hjúkrunarfræðingar á Akureyri hafa krafist sömu launahækkunar og kollegar þeirra á Landspítalanum. Samkvæmt heimildum blaðsins er stefnt að undirritun fyrir páska. Hjúkrunarfræðingur sem Vikudagur ræddi við segir viðræður hafa gengið vel en það eigi eftir að kynna samninginn fyrir starfsfólki.
Stofnanasamningur hjúkrunarfræðinga á Akureyri hefur ekki verið endurskoðaður síðan árið 2006 en vinna við nýjan samning hófst í nóvember 2011.