Stjórnir Stéttarfélagsins Kjalar og Starfsmannafélags Skagafjarðar hafa undirritaðsamkomulag um sameiningufélaganna undir nafni þess fyrrnefnda. Samkomulagið verður kynnt félagsmönnum í StarfsmannafélagiSkagafjarðar á næstu dögum og afgreitt á aðalfundi félagsins í febrúar. Sameiningin hefur þegar verið kynnt á trúnaðarmannafundi hjá Kili og á aðalfundi félagsins í mars verður hún endanlega staðfest með kosningu nýrrar stjórnar. Formenn beggja félaganna, þau Árni Egilsson hjá Starfsmannafélagi Skagafjarðar og Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar, segja þetta jákvætt skref.