Fulltrúar Samkaupa afhentu í dag samstarfsaðilum hjálparstarfs á Eyjafjarðarsvæðinu 500 þúsund króna peningagjöf, sem ætluð til að létta undir með fólki sem þarfnast aðstoðar fyrir jólin. Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Hjálpræðisherinn og Rauði krossinn á Akureyri hafa nú tekið höndum saman og vinna sameiginlega að hjálparstarfi á svæðinu. Sigurður L. Kristjánsson verslunarstjóri Nettó á Akureyri segist sannfærður um að gjöfin komi að góðum notum. Sigurveig Bergsteinsdóttir sagði að söfnunin hefði gengið vel fram að þessu.
Á meðfylgjadi mynd eru Sigurður L. Kristjánsson, Sigurveig Bergsteinsdóttir og Halldór Heiðarsson svæðisstjóri Samkaupa.
karleskil@vikudagur.is