Samherji veitir 90 milljónum króna til samfélagsverkefna

Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður Samherjasjóðsins
Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður Samherjasjóðsins

„Þátttaka barna og unglinga í íþóttum er ómetanlegur þáttur í forvörum og uppeldi.  Samherji vill efla þetta starf enn frekar með því að veita íþrótta- og æskulýðsfélögum styrki. Frjármununum skal varið til að lækka æfingagjöld barna og unglinga og/eða til að lækka kostnað við keppnisferðir þeirra á yfirstandandi ári og styrkja starfið með öðrum hætti,“ sagði Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður Samherjasjóðsins, sem afhenti í kvöld samtals 90 milljónir króna til margvíslegra verkefna. Í fyrra námu styrkveitingar úr Samherjasjóðnum samtals 75 milljónum króna.

Velferð og tækni á Öldrunarheimilum Akureyrarbæjar

Auk þess að styrkja íþróttastarf á Eyjafjarðarsvæðinu hefur Samherji ákveðið að styrkja sérstaklega verkefni sem felst í því að efla virkni eldra fólks og auðvelda því samskiptin, með hjálp nútímatækni. Sjónum verður sérstaklega beint að báðum öldrunarheimilunum á Akureyri.

Ætlunin er að hvetja og þjálfa íbúa og starfsfólk til að nýta tækni og möguleg forrit til að auka hreyfingu og virkni, samhliða auknum samskiptum.

Samstarfssamningur við Special Olimpics á Íslandi

Samherji hefur gengið frá samstarfssamningi við Íþróttasamband fatlaðra og Special Olimpics á Íslandi. Með samningnum verður Samherji einn af aðalstyrktaraðilum Special Olimpics á Íslandi fram yfir alþjóðaleika samtakanna í Los Angeles árið 2015. Styrkupphæðin nemur samtals 15 milljónum króna.

Fjölmenni í KA heimilinu

Styrkirnir voru veittir við hátíðlega athöfn í KA heimilinu á Akureyri í kvöld.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast