Samherji næst kvótahæsta fyrirtæki landsins

Nýtt fiskveiðiár hefst í dag, 1. september og hefur Fiskistofa úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2012/2013. Úthlutunin fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og á fyrra fiskveiðiári. Úthlutað er 318.554 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 299.538 þorskígildistonn á sama tíma í fyrra, reiknað í þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð.

Grandi á toppnum

Sé litið til þeirra tíu fyrirtækja sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi, líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 10,8% af heildinni. Þar á eftir kemur kemur Samherji með 6,5% og þá Þorbjörn hf. með 5,7%. Þetta er sama röð efstu fyrirtækja og í fyrra.

Kaldbakur EA í öðru sæti

Á listanum yfir úthlutað aflamark til einstakra skipa er Samherjatogarinn Kaldbakur EA í öðru sæti, á eftir Guðmundi í Nesi sem er í eigu Brims. Samherjatogararnir Björgúlfur EA og Björgvin EA eru síðan í fimmta og sjötta sæti.

 

Nýjast