Á morgun, föstudag, verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri sameiginlegur fundur bæjarstjórnar Akureyrar og borgarstjórnar Reykjavíkur. Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, segir að markmið fundarins sé fyrst og fremst að ræða sameiginleg hagsmunamál, sem séu fjölmörg, og efla kynni borgarfulltrúa í höfuðborg Íslands og bæjarfulltrúa í höfuðstað Norðurlands. Fundurinn verður opinn áhorfendum sem koma í Hof og einnig sendur út í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4. Áður en fundurinn hefst verður borgarfulltrúum boðið í kynnisferð um Akureyri og skoða þeir meðal annars aðstöðuna á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli.
Dagskrárliðir fundarins eru sem hér segir:
Áætluð fundarlok eru um kl. 18.00.