Samdráttur á milli ára

Umferðin í gegnum Héðinsfjarðargöng sl. tvær vikur er 12,1 prósentum minni í ár en í fyrra. Athygli vekur að umferðin í kringum Dalvík er álíka mikil um Fiskidaginn mikla á milli ára en hún er minni dagana fyrr í vikunni. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að þetta gæti bent til þess að vegfarendur hafi farið fyrr af stað fyrir bæði Fiskidagshelgina og verslunarmannahelgina í fyrra til að skoða hin nýju Héðinsfjarðargöng. Það hafi hins vegar ekki verið jafn mikill áhugi á því í ár.

Nýjast