Salötin slá út samlokurnar

Það er ýmislegt í boði hjá Bjarna Rúnari. Mynd/Þröstur Ernir.
Það er ýmislegt í boði hjá Bjarna Rúnari. Mynd/Þröstur Ernir.

„Það er nóg að gera. Senn líður að fermingum og þá kemur alltaf kippur í veisluþjónustuna hjá okkur. Við erumt.d. að bjóða upp á létt kaffiborð og smárétti í veislurnar og það virðist falla vel í kramið hjá fólki. Svo er nóg að gera í hefðbundinni framleiðslu,“ segir Bjarni Rúnar Sigurðsson hjá Mat og Mörk á Akureyri. Fyrirtækið framleiðir m.a. samlokur, langlokur, pastarétti, pizzur og ýmis salöt. Bjarni segir neytendur vera sérstaklega hrifna af salötunum sem rjúka út.

„Sala á samlokunum hefur verið nokkuð stöðug í gegnum tíðina en salötin hafa verið að taka yfir hvað vinsældir varðar. Hvort sem það eru brauðsalöt, kartöflu- eða hrásalat, þetta rokselst allt saman. Við framleiðum einnig grillsósur fyrir Norðlenska. Þótt það sé ekkert sérstaklega mikið grillveður hérna fyrir norðan þessa dagana, þá eru margir byrjaðir að grilla,“ segir Bjarni.

25 ára afmæli

Tólf manns starfa hjá Mat og Mörk sem fagnar 25 ára afmæli sínu á næsta ári. Bjarni á og rekur fyrirtækið ásamt Jenný Gunnbjörnsdóttur, sem var stofnað í febrúar árið 1989. „Við höfum verið á sömu kennitölunni frá upphafi þannig að þetta er skynsamlega rekið fyrirtæki. Samkeppnin er mikil á markaðnum og maður fær ekkert að vera í friði. Þetta er stöðugur barningur en reksturinn gengur vel og við erum frekar að bæta í en að draga úr,“ segir Bjarni.

throstur@vikudagur.is

Nýjast