Framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri hefur ákveðið að skammstöfunin fyrir stofnunina verði SAk, en til þessa hefur skammstöfunin verið FSA. Nafni Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri var breytt með lögum árið 2007, en ákveðið var að notast áfram við skammstöfunina FSA. Framkvæmdastjórn efndi til hugmyndasamkeppni um nýja skammstöfum fyrir nafnið Sjúkrahúsið á Akureyri og bárust liðlega sjötíu tillögur. Nýtt logo fyrir sjúkrahúsið verður nú unnið. Aðrar breytingar sem þessi ákvörðun hefur í för með sér, svo sem breyting á veffangi, netföngum og merkingar, verða gerðar síðar á árinu.
karleskil@vikudagur.is