Sagan á eftir að skrifa störf Jóhönnu og ríkisstjórnarinnar enn betur

Kristján L. Möller
Kristján L. Möller

 „Þetta er söguleg tíðndi í stjórnmálasögu okkar,“ segir Kristján L. Möller þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi um þá ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að draga sig í hlé í stjórnmálum. „Mikilhæfur stjórnmálamaður tilkynnir hér ákvörðun sína um að hætta störfum á Alþingi eftir 35 ára samfellda setu. Við jafnaðarmenn þökkum henni fyrir vel unnin störf og leiðsögn.“

 

Kristján segir að jafnaðarfólki hafi alltaf litið upp til Jóhönnu Sigurðardóttur og dáðst af störfum hennar og ósérhlífni. „Það að starfa óslitið í stjórnmálum í 35 ár er í raun og veru kraftaverk, og fyrir það ber að þakka.“

 Hvað hefur einkennt hennar formennsku ?

"Jóhanna tók að sér að vera formaður flokks jafnaðarmanna árið 2009 og leiða ríkisstjórn undir okkar forystu á mestu umrótar og átakatímum seinni áratuga. Hún hefur leyst það starf farsællega. Sagan á eftir að skrifa hennar störf og ríkisstjórnarinnar enn betur.Ríkisstjórn Jóhönnu er ríkisstjórnin sem leiddi okkur út úr kreppunni."

 Hefur þú hugleitt að bjóða þig fram til formanns ?

„Nei, það hef ég ekki gert.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast