Safnar mottu fyrir pabba

„Ég hef tekið þátt öll árin og gert það í nafni góðra manna. Báðir afar mínir létust t.d. úr krabbameini sem varð kveikjan að þessu. Einnig hafa tveir vinir mínir greinst með sjúkdóminn, þannig að málefnið stendur mér nærri og ég vil einfaldlega leggja mitt að mörkum,“ segir Birgir Hrannar Stefánsson á Akureyri, sem tekur þátt í Mottumars, átaki í baráttu gegn krabbameini í körlum.

Birgir setti sér það markmið að safna 48 þúsund krónum til styrktar málefninu og náðist það á einum sólarhring. „Viðtökurnar komu mér virkilega á óvart. Ég safnaði meira á einum sólahring núna en öll síðustu ár til samans og get engan veginn útskýrt það. Þetta hitti bara í mark,“ segir hann.

Birgir nálgast málefnið á öðrum forsendum í ár. "Ég fékk þær fréttir nýlega að pabbi hefði greinst með frumubreytingar í blöðruhálskirtli og þyrfti að fara í aðgerð fljótlega. Hann er minn besti vinur og fyrirmynd og ég vil sýna honum stuðning."

throstur@vikudagur.is

Nánar er rætt við Birgi í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast