Sæng úr íslenskri ull hlaut fyrstu verðlaun

Atvinnu- og nýsköpunarhelgi var haldin í Háskólanum á Akureyri og mættu um 50 þátttakendur til leiks og var unnið að 13 hugmyndum sem kynntar voru fyrir dómnefnd. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin auk þess sem verðlaun voru veitt fyrir mesta árangurinn yfir helgina, athyglisverðustu hugmyndina og val fólksins.

Í fyrsta sæti var verkefnið Isfold en að því stóð Anna Þóra Ísfold og hlaut hún 400.000 krónur í verðlaun. Verkefnið snýr að því að hanna sæng úr íslenskri ull. Að sögn Önnu Þóru eru sængur úr íslenskri ull mjög gott útflutningstækifæri. Íslenska ullin er þeim eiginleikum gædd að hún heldur vel hita en hleypir jafnframt raka frá sér sem hentar vel til sængurgerðar: „Helsti kostur vörunnar er að notandanum verður heitt nánast samstundis án þess að ofhitna. Ullarsæng jafnar hitastig líkamans og hleypir út raka með náttúrulegum hætti. Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að gigtveikir nái lengri draumsvefni með ullarsæng,“ segir Anna Þóra.

Nýjast