Sækist eftir 2.-3. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi

Erla Sigríður Ragnarsdóttir
Erla Sigríður Ragnarsdóttir

Erla Sigríður Ragnarsdóttir framhaldsskólakennari býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga. Hún óskar eftir stuðningi í 2.-3. sætið.                                                                                                                  

Erla er fædd árið 1967, er uppalin á Egilsstöðum en býr nú í Hafnarfirði ásamt eiginmanni og þremur börnum. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum, er með Cand. Mag gráðu í sögu og stjórnmálafræði frá Háskólanum í Árósum og hefur jafnframt stundað meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands og lokið diplómunámi í stjórnun og fræðslu. Hún kennir sögu við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og er sviðsstjóri félagsgreina við skólann.                                            

            Stjórnmál hafa alltaf verið Erlu hugleikin og vill hún leggja sitt af mörkum til þess að auka tiltrú Íslendinga á Alþingi, skapa jákvæð og mannleg stjórnmál þar sem gengið er hiklaust til verka og orðræðan er vönduð. Erla er lýðræðissinni og styður hugmyndir um aukna þátttöku fólksins. Hún treystir fólki til að taka skynsamar og upplýstar ákvarðanir í stórum málum jafnt sem smáum.                                                                                                

Erla hefur áhyggjur af undirstöðum velferðakerfisins og telur mikilvægt að huga að sjúkraflutningum við landsbyggðina og styrkja grunnþjónustuna heima í héraði. Hún segir: ,,Ég geri mér grein fyrir því að eina leiðin til að styrkja þessar grunnstoðir samfélagsins er að huga að atvinnulífinu og til þess treysti ég Sjálfstæðisflokknum best. Ég vil taka þátt í því að byggja hér upp öflugt atvinnulíf. Mestu skiptir þar um að veita atvinnulífinu það svigrúm og frelsi til að standa á eigin fótum og verða arðbært til framtíðar. Tækifærin til þess eru svo sannarlega til staðar á Norður- og Austurlandi; í ferðaþjónustu, iðnaði, hátækni og skapandi greinum. Nýtum tækifærin - þannig mun okkur öllum farnast best“.

(fréttatilkynning)

Nýjast